Tekið undir gagnrýni B.Í. í fjölmiðlafrumvarpi

Athygli vekur að í nýju frumvarpi til fjölmiðlalaga eru ábyrgðarákvæði sem taka á því hver beri höfundarábyrgð á ummælum sem orðrétt eru höfð eftir fólki á prenti. Samkvæmt þessu tekur flutningsmaður frumvarpsins, menntamálaráðherra, undir málflutning stefndu í „Vikumálinu“ svokallaða þar sem blaðamaður/útgefandi Vikunnar var í Hæstarétti talinn bera höfundarábyrgð á ummælum sem voru höfð orðrétt eftir dansara á nektarstað. Menntamálaráðherra, ramkvæmdarvaldið, er þannig að taka efnislega undir þá gagnrýni sem kom fram, m.a. frá B.Í. í kjölfar túlkunar Hæstaréttar á prentlögunum. Í frumvarpinu segir: "Sé ritefni haft beint eftir nafngreindum einstaklingi ber sá sem það er haft eftir ábyrgð á eigin ummælum hafi hann samþykkt miðlun þeirra og sé hann annað hvort heimilisfastur hér á landi eða lýtur íslenskri lögsögu á öðrum grundvelli."
Málinu var sem kunnugt er vísað til Mannréttindadómstólsins í Strassbourg og stóðu útgefandinn, Britingur og Blaðamannafélagið sameiginlega að því. Málið hefur nú verið móttekið hjá Mannréttindadómstólnum og er þess beðið hvort það fæst tekið fyrir. Verði það tekið fyrir er það íslenska ríkið sem að öðru jöfu yrði varnaraðili og væri þá að verja lagagjörning sem það nú vill breyta. Í nýja fjölmiðlafrumvarpinu felst viðurkenning á að lögin og lagatúlkunin eins og hún var í Hæstarétti hafi verið gölluð og því vaknar sú spurning hvort ríkið muni þá láta málið fara í efnislega meðferð eða freysta þess að semja um úrlausn við Birting og B.Í. í ljósi þess að þegar sé komið af stað ferli við að breyta gömlu lögunum. Gunnar Ingi Jóhannsson hdl sem fer með málið fyrir Birting og B.Í. staðfesti í samtali við press.is í dag að ábending um fyrirhugaðar breytingar í fjölmiðlalögunum hafi verið sendar dómstólnum í Strassborg í gær enda hafi dómstóllinn óskað eftir því að fá upplýsingar um þróun allra máls sem gætu tengst þessu máli. Þetta ákvæði hljóti að teljast vera þess eðlis.




