Nýtt tækifæri til endurmenntunar

Í sérstöku fagráði fyrir þetta nám eru þau Þórhallur Gunnarsson fyrrverandi dagskrárstjóri RÚV og Kastljóss, Ólafur Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins, og Katrín Ólafsdóttir, lektor við HR en um sjálfa kennsluna munu ýmsir sjá.
Í kynningu skólans á náminu segir ennfremur:
„Verðandi og vaxandi fréttamenn fá tækifæri á að nema þá fagkunnáttu, list og siðfræði fréttamennsku með
fræðimönnum Háskólans í Reykjavík og reyndu kunnáttufólki úr heimi innlendrar fjölmiðlunar.
Sérstaða námsins liggur í hagnýtu eðli námsins, sterkum tengslum við atvinnulífið og fræðilegum grunni. Námið er
í senn fræðilegt og hagnýtt en byggir að miklu leyti á verklegum æfingum þar sem reynir á fagþekkingu þátttakenda í
grunnþáttum viðskipta og lögfræði s.s. hagfræði, stjórnsýslu og siðfræði. Þátttakendur fá einnig
undirstöðuþekkingu og færni í fréttavinnslu, samtalsfærni, skriffærni og tæknikunnáttu. Námið á sér ekki
hliðstæðu á Íslandi.
Að námi loknu eiga þátttakendur að vera vel í stakk búnir undir sérhvert starf sem tengist atvinnugreininn. Mikil áhersla er lögð
á að þátttakendur geti nýtt þá þekkingu sem þeir afla sér á beinan hátt í núverandi eða
framtíðarstarfi. Einnig er mikil áhersla á að nemendur geti lært hver af öðrum og miðlað reynslu sinni.“
Sjá einnig hér





