:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Ólíkt fréttamat samfélagsmiðla og gömlu miðlanna

Líftími fréttaefnis á samfélagsvefjum er talsvert skemmri en hjá hefðbundnum fréttamiðlum samkvæmt nýrri rannsókn sem gerð hefur verið í Bandaríkjunum. Jafnframt er fréttamatið á samfélagsvefjum talsvert annað en það er á eldri og hefðbundnari miðlum. Þetta kemur fram í skýrslunni „Hefðbundin miðlun og nýmiðlun“ sem gefin er út af PEW Rannsóknarmiðstöðinni og er liður í rannsóknarverkefni fyrir bætt gæði í blaðamennsku (PEJ).  Fram kemur að  um 53% af helstu fréttum í viku hverri  er deilt eða þær ræddar og með einhverjum hætti á bloggsíðum og að sú umræða endist yfirleitt aðeins  í um þrjá daga. Sama má segja um 72% af helstu fréttum sem deilt er á Twitter.  Það kemur hins vegar í ljós að rúmur helmingur þessara helstu frétta, sem deilt er með þessum hætti, detta út af dagskrá samfélagsmiðlanna innan við sólarhring eftir að þær koma fram. Lifitíminn er því talsvert stuttur og umræðan gengur hratt yfir.

Það kom jafnframt fram í könnuninni að hver samfélagsmiðill hefur sín sérkenni.  Þannig má t.d. nefna að bloggið hefur tilhneigingu til að fjalla hlutfallslega mikið um tilfinningaþrungin mál, mál sem snerta einstaklinga, eða mál sem kalla á ástríðufullar hugsjónir eða réttindi einstaklinga.  
Facebook var ekki með í könnuninni en það er sem kunnugt er vinsælasti samfélagsmiðillinn hér á landi. 
Heilt yfir virðist hins vegar fréttamatið á samfélagsmiðlunum vera talsvert frábrugðið því sem gerist í hefðbundnum fjölmiðlum og og á meðan samfélagsvefirnir fjalla talsvert um fréttir sem koma úr hefðbundnu miðlunum þá er frekar sjaldgæft – enn sem komið er – að hefðbundnir miðlar fjalli um það sem er að gerast á samfélagsmiðlunum. Aðeins er nefnt eitt dæmi um að mál hafi verið mikið rætt á samfélagsvefjum áður en það náði að kokmast inn í hefðbundnu miðlana, en það var umfjöllunin um rannsóknarskýrslur vegna loftslagsbreytinganna, svokallað „climatgate“.
Rannsóknin náði til eins árs og voru skoðuð blogg í Bandaríkjunum  frá janúar 2009  til  janúar 2010 . Twitter var einnig skoðað en í aðeins skemmri tíma.
Sjá um könnunina í heild hér



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning