:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Pressukvöld um fjölmiðla og skýrsluna

Blaðamannafélag Íslands efnir til Pressukvölds um stöðu fjölmiðla í ljósi skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis í Iðusölum í Lækjargötu kl. 20 næstkomandi fimmtudag, 20. maí.  Blaðamannafélagið setti fljótlega eftir útkomu skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis á fór starfsnefnd til að fara yfir fjölmiðlahluta rannsóknarskýrslunnar um bankahrunið. Í nefndina völdust Arna Schram, Björn Vignir Sigurpálsson og Jóhann Hauksson. Nefndinni var ætlað að greina skýrsluna og svara ýmsum þeim spurningum sem upp kynnu að vakna  um stöðu blaðamennskunnar í ljósi skýrslunnar.

Ætlunin var að gerð yrði grein fyrir áliti nefndarinnar á síðasta aðalfundi Blaðamannafélags Íslands, en vegna tímaskorts var ákveðið á fundinum að fresta því og efna til sérstaks Pressukvölds um efnið.
Á fundinum munu nefndarmenn fara yfir skýrsluna, og greina frá áliti sínu, svo sem hvort fjölmiðlahluti skýrslunnar sé nægilega öflugur til að vekja stéttina til vitundar, hvernig fjölmiðlar hafi rækt hlutverk sitt og hvað niðurstöður hennar segi um íslenska fjölmiðla, svo sem rekstrarform, eignarhald, vinnutíma og lýðræði á fjölmiðlum? Er sérhæfingu inni á fjölmiðlum ábótavant sem og ritstjórn, eru fjölmiðlar of opnir fyrir spuna og hagsmunaöflum? Er hægt að draga einhverjar ályktanir af skýrslunni um stöðu blaðamennskunnar og skilyrði? Hvað getur Blaðamannafélagið gert í framhaldi af skýrslunni til að efla fagvitund og sjálfstæði blaðamanna?
Eins og áður segir verður pressukvöldið haldið í Iðusölum í Lækjargötu kl. 20 næstkomandi fimmtudag, 20. maí.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning