:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

RÚV vann fjölmiđlamótiđ í fótbolta

Fjölmiđlameistarar:   Efri röđ f.v. Kristján Sigurjónsson , Ćgir Ţór Eysteinsson, Tryggvi Guđmundsson og Jónatan Vilhjálmsson. Neđri röđ f.v. Úlfur Grönvold, Dađi Sveinsson, Benedikt Anes Nikulás Ketilsson, Kristín Hálfdánardóttir og Guđni Kristinsson.
Fjölmiđlameistarar: Efri röđ f.v. Kristján Sigurjónsson , Ćgir Ţór Eysteinsson, Tryggvi Guđmundsson og Jónatan Vilhjálmsson. Neđri röđ f.v. Úlfur Grönvold, Dađi Sveinsson, Benedikt Anes Nikulás Ketilsson, Kristín Hálfdánardóttir og Guđni Kristinsson.

Ríkisútvarpið bar sigurorð af liði Stöðvar 2 í úrslitaleik á Fjölmiðlamótinu í knattspyrnu 2009 sem haldið var um helgina. Leikurinn var æsispennandi  og lauk ekki fyrr en eftir vítaspyrnukeppni og bráðabana og urðu úrslitin 7-6.  Þetta er í fyrsta skipti sem RÚV vinnur mótið þrátt fyrir að hafa alltaf tekið þátt frá því mótið var fyrst haldið árið 1988. Lið Saga Film fékk bronsverðlaun eftir frækilegan sigur á liði Viðskiptablaðsins 5-3, en þetta er jafnframt besti árangur Viðskiptablaðsins í keppninni til þessa. (Sjá fleiri  myndir hér)

Átta lið tóku þátt í keppninni að þessu sinni og var þeim skipt í tvo riðla.  Liðin sem ekki komust upp úr riðlunum í krossspil voru lið Fréttablaðsins, Morgunblaðsins, DV og Fótbolta.net.  Í undanúrslitum vann lið Stöðvar 2 Viðskiptablaðið 2-0 og RÚV vann Saga Film einnig 2-0.  Í úrslitaleiknum var markalaust eftir venjulegan leiktíma og var þá farið beint í vítaspyrnukeppni.  Eftir fimm spyrnur var enn jafnt 4-4 og var þá gripið til bráðabana, sem lauk þegar Stöð 2 mistókst að skora í sjöundu spyrnu sinni.
Þetta er í 21. skipti sem Fjölmiðlamótið í knattspyrnu er haldið, en það hefur verið haldið árlega frá árinu 1988 eins og áður sagði, að undanskildu hrunárinu 2008.  Morgunblaðið, DV og Stöð 2 hafa oftast skipst á um að vinna mótið.
Ljósmynd: Kristján Orri Jóhannsson



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning