:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Sigrún ráðin dagskrárstjóri Sjónvarps

Sigrún Stefánsdóttir
Sigrún Stefánsdóttir

Sigrún Stefánsdóttir hefur verið ráðin nýr dagskrárstjóri Sjónvarps eftir að Erna Ósk Kettler, nýráðinn dagskrárstjóri, ákvað að gefa frá sér starfið af heilsufarsástæðum. Hún verður þó aðstoðarmaður dagskrárstjóra þegar hún nær heisu á ný. Sigrún er fyrir dagskrarstjóri hljóðvarps og mun hún því gegna báðum störfunum tímabundið. Í Fréttablaðinu i morgun kemur fram að Sigrún hafi verið ráðin án auglýsingar og haft er eftr Páli Magússyni útvarpsstjóra að Sigrún hafi einfaldlega verið besti ksturinn sem hann hafði í stöðunni. Aðspurður segir hann það þó hafa komið til greina að auglýsa starfið en ákveðið hafi verið að gera það ekki. Í vor sóttu 37 um starf dagskrárstjóra þegar það ver auglýst. Óljóst er hvernig verður með þessi dagskrárstjórasörf útvarps og sónvarps til lengri tíma, en samkvæmt ummælum útvarpsstjóra í Fréttablaðinu sendur ekki til að sameina þau.

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning