:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Skilafrestur tilnefninga er 6. febrúar!

Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands verða veitt í 9. skipti þann 3. mars næstkomandi. Rétt er að árétta að skilafrestur tilnefninga til dómnefndar er mánudagurinn 6. febrúar.

 Eins og áður eru verðlaunin eru veitt í þremur flokkum en þeir eru þessir:

• Besta umfjöllun ársins 2010
• Rannsóknarblaðamennska ársins 2010
• Blaðamannaverðlaun ársins 2010

Hægt er að senda inn tilnefningar  til verðlaunanna á skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla  23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt hefur verið  settur inn hnappur hér á heimasíðuna þar sem hægt verður að tilnefna með rafrænum hætti. ( Sjá ofarlega á forsíðunni til hægri) 
Tilnefningar dómnefndar verða síðan gerðar kunnar í laugardaginn 25. febrúar og viku síðar, þann 3. mars  verða verðlaunin sjálf afhent.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning