:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Slakað á auglýsingareglum í Svíþjóð

Samkvæmt lögum sem taka gildi í Svíþjóð í ágúst, mun verða slakað mikið á skilyrðum varðandi auglýsingar í sjónvarpi. Þannig verður ekki lengur skylt að hafa 20 mínútur af efni á milli þess sem gerð eru auglýsingahlé, eins og verið hefur. Sænsku reglurnar hafa verið mun strangari en þær sem gilda almennt hjá Evrópusambandinu og eru nýju lögin sett til að ná fram einsleitni innan ESB að þessu leyti. Nýju lögin slaka líka á reglum varðandi kostun og auglýsingar og heimilt verður að setja inn tiltekin vörumerki á vörur sem notaðar eru við dagskrárgerð, en slíkt hefur til þessa verið óheimilt í Svíþjóð.
Sjá einnig hér



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning