Sölvi ekki brotlegur
Almennt - 01.júlí 2010

Sölvi Tryggvason
Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur fellt úrskurð í kæru NN gegn Söva Tryggvasyni vegna umfjöllunar Sölva á Skjá einum og Pressunni 24. febrúar 2010 um forræðisdeilur og yfirheyrslur yfir barni í Héraðsdomi og það kallað "réttarmorð". “ Gagnrýni í umfjölluninni beindist fyrst og fremst að réttarkerfi landsins. Hvorki móðirin, barnið né aðrir málsaðilar voru nafngreindir eða þekkjanlegir á mynd. Niðurstaða Siðanefndar var að Sölvi hefði ekki brotið siðareglur B.Í. Sjá úrskurðnn í heild á siðavefnum eða hér.





