:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Sżning į myndum įrsins ķ Geršarsafni

Mynd įrsins 2009
Mynd įrsins 2009

Sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands, Myndir ársins 2009, er opin í Gerðarsafni í Kópavogi alla daga nema mánudaga frá klukkan 11-17. Aðgangur er ókeypis að sýningunni, en á henni eru rúmlega 150 bestu blaðaljósmyndir liðins árs, auk þeirra mynda sem verðlaunaðar voru sem bestu myndir ársins í eftirfaranndi flokkum:  Mynd ársins, fréttamynd ársins, íþróttamynd ársins, portrettmynd ársins, tímaritamynd ársins, umhverfismynd ársins, daglegt líf,  þjóðlegasta myndin, skoplegasta myndin og myndröð ársins.  Einnig eru á sýningunni sýnd bestu myndskeið ársins 2009.

Bók með bestu blaðaljósmyndum ársins 2009 er til sýnis og sölu á safninu.  Þá er á neðri hæð safnsins ljósmyndasýning Þorvaldar Arnar Kristmundssonar, sem hann nefnir Náttúra er vörumerki/Nature is brand. Sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands stendur í Gerðarsafni til 2. maí.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskrįning