Sýning á myndum ársins í Gerðarsafni
Almennt - 18.mars 2010

Mynd ársins 2009
Sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands, Myndir ársins 2009, er opin í Gerðarsafni í Kópavogi alla daga nema
mánudaga frá klukkan 11-17. Aðgangur er ókeypis að sýningunni, en á henni eru rúmlega 150 bestu blaðaljósmyndir liðins árs, auk
þeirra mynda sem verðlaunaðar voru sem bestu myndir ársins í eftirfaranndi flokkum: Mynd ársins, fréttamynd ársins,
íþróttamynd ársins, portrettmynd ársins, tímaritamynd ársins, umhverfismynd ársins, daglegt líf, þjóðlegasta
myndin, skoplegasta myndin og myndröð ársins. Einnig eru á sýningunni sýnd bestu myndskeið ársins 2009.





