Þingsályktun um tjáningarfrelsi samþykkt

Alþingi samþykkti einróma í nótt þingsályktunartillögu Birgittu Jónsdóttur o.fl. um að Ísland leitist við að verða eins konar fjölmiðla fríríki hvað varðar vernd tjáningar- og upplýsingafrelsis. Ríkisútvarpið hafði eftir Birgittu að nokkrir stórir erlendir fjölmiðlar ígrundi að flytja rannsóknarblaðamennskudeildir sínar hingað til lands.
Þingályktunartillagan er svohljóðandi:
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að leita leiða til að styrkja tjáningarfrelsi, málfrelsi, upplýsingamiðlun og
útgáfufrelsi auk þess sem vernd heimildarmanna og afhjúpenda verði tryggð.
Í þessu skyni verði:
a. gerð úttekt á lagaumhverfinu svo að hægt sé að afmarka viðfangsefnið og undirbúa nauðsynlegar lagabreytingar eða
nýja löggjöf,
b. litið til löggjafar annarra ríkja með það að markmiði að sameina það besta til að skapa Íslandi sérstöðu
á sviði tjáningar- og upplýsingafrelsis,
c. komið á fót fyrstu alþjóðaverðlaununum sem kennd yrðu við Ísland, Íslensku
tjáningarfrelsisverðlaununum.
Við starfið verði leitað aðstoðar sérfróðra erlendra aðila.
Markmiðið verði lýðræðisumbætur þar sem traustum stoðum verði komið undir útgáfustarfsemi og ásýnd landsins
í alþjóðasamfélaginu efld.
Mennta- og menningarmálaráðherra upplýsi Alþingi um framfylgd verkefna innan Stjórnarráðsins skv. 1.–4. mgr. á þriggja
mánaða fresti frá samþykkt ályktunarinnar.
Sjá nánar hér





