Þrengt að frelsi fjölmiðla fyrir kosningar á Ítalíu

Pólitískir liðsmenn Berlusconis,forsætisráðherra Ítalíu, hafa samþykkt mjög stífar reglur um umfjöllun um stjórnmál í ítalska ríkissjónavrpinu RAI. Það var sérstakt pólitískt skipað dagskrárráð RAI, sem ákvað með meirihlutaatkvæðum stuðningsmanna Berlusconi að banna í raun pólitíska umfjöllun í allri dagskrárgerð á RAI í heilan mánuð fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem framundan eru í lok mars. Þessar reglur munu hins vegar ekki ná til einkastöðvanna, en þær eru flestar í eigu Berlusconis eins og kunnugt er.
Samkvæmt nýju reglunum verður þá og því aðeins hægt að fjalla um pólitísk málefni í þáttum
hjá RAI mánuðinn fyrir kosningar ef fulltrúar frá öllum 30 framboðunum eru viðstaddir og fái jöfn tækifæri til að koma
með innlegg. Þetta felur í sér að ekki verður hægt að fjalla um stjórnmál á forsendum greinandi blaðamennsku í hinum
ýmsum dægurmálaþáttum, m.a. þeim sem þekktir eru fyrir að vera gagnrýnir á stjórnvöld. Raunar hafa stuðningsmenn
Berlusconis ítrekað haldið því fram að þáttagerð á RAI sé pólitísk og beinist gegn núverandi
stjórnvöldum. Í því ljósi kemur ekki á óvart að ýmsir hafa kallað þessar nýju reglur pólitíska
ritskoðun, þar sem þaggað sé niður í umræðu sem setur aðgerðir stjórnvalda í gagnrýnið ljós. Hins vegar hafa
ýmsar einkastöðvar verið sagðar hallar undir eiganda sinn, og þar með stjórnvöld.
Sjá einnig hér





