:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Tjáningarfrelsi og lýðræði

Innanríkisráðuneytið efnir til  fundar um tjáningarfrelsi og lýðræði föstudaginn 27. janúar næstkomandi klukkan 8.30 til 10 í Iðnó í Reykjavík.  Erindi flytja  Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar, og er heiti þess "Ógna rangfærslur og hlutdrægar fréttir lýðræðinu?" Þá flytur Björg Eva Erlendsdóttir, blaðamaður erindi sem hún nefnir  "Segðu mér sömu söguna aftur". Loks mun Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl. fjallar um Tjáningarfrelsi í tengslum við ákvæði hegningarlaga um meiðyrði. Í framhaldinu gefst kostur á fyrirspurnum og umræðum.
Fundurinn er öllum opinn og er aðgangur ókeypis. Hægt verður að kaupa léttar morgunverðarveitingar á staðnum



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning