Traust á fjölmiðlum minnkar enn
Almennt - 18.maí 2010

Samkvæmt nýrri könnun MMR (Markaðs og miðlarannsókna) fækkar þeim sem segjast bera mikið traust til Ríkisútvarpsins. Nú segjast 51,8 % bera mikið traust til Ríkisútvarpsins, en hlutfallið var 64,2% í könnun MMR í októberber 2009. Um 16,8% segjast aftur á móti bera lítið eða mjög lítið traust til RÚV. Hins vegar bera aðeins 15,4% mjög mikið eða mikið traust til fjölmiðla almennt en rétt tæp 47% segjast bera lítið eða mjög lítið traust til fjölmiðla. Það er verulega mikið minna traust en í október í fyrra þegar 18,6% báru mikið eða mjög mikið traust til fjölmiðla og „aðeins“ 35,6% lítið eða mjög lítið traust. Í könnuninni í fyrra hafði traust á fjölmiðlum verið að minnka frá fyrri könnunum.
Lögreglan nýtur mest trausts en 78,9% aðspurðra sögðust bera mikið eða mjög mikið traust til hennar og er það svipað og í fyrri könnunum. Núna segjast 69,7% segjast bera mikið traust til Háskóla Íslands og 54,2% segjast bera mikið traust til Háskólans í Reykjavík sem er sambærilegt hlutfall og í fyrri könnunum.




