:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Urban hættir hjá Ritzau

Danska fríblaðið Urban hefur nú hætt að notast við þjónustu fréttastofunnar Ritzau, sem blaðið hefur notað frá upphafi. Þess í stað er blaðið nú eingöngu með efni sem framleitt er á þeirra eigin ritstjórn eða er búið til á öðrum blöðum fjölmiðlasamsteypunnar Mecom sem m.a. gefur út BT og Berlinske. Þetta hefur vakið athygli áhugafólks um fríblöð en svo virðist sem ákveðin tilhneiging sé nú í gangi hjá slíkum blöðum að hætta að nota þjónustu stórra fréttaveita. Í Bandaríkjunum hætti t.d. Metró að notast við AP fréttastofuna  fyrir nokkru og einnig hefur hollenska viðskiptablaðið Financieele Dagblad hætt viðskiptum við fréttaveituna ANP. Samkvæmt talsmönnum þessara blaða, þá felst sparnaður í því að búa til sitt eigið ritstjórnarefni  og tryggir þetta ákveðin gæði fyrir staðbundna lesendur því ritstjórnarefni  sem búið er til á staðnum heldur  ákveðinni tengingu við lesendahópinn.

Sjá einnig hér



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning