:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Vefmiðill fer á prent

Michael Stoll ásamt samstarfsfólki að skoða síðupróförk
Michael Stoll ásamt samstarfsfólki að skoða síðupróförk

Í dag, þriðjudaginn 22. Júní, kom út í San Francisco óvenjulegt fréttablað, en það var prentuð útgáfa af vefmiðlinum San Francisco Public Press (The Press). Vefmiðillinn er ekki rekinn í hagnaðarskyni en dekkar staðbundnar fréttir á vefnum og hefur starfað í um ár. Þessi vefmiðill er að þreyfa fyrir sér um að gefa út prentað fréttablað samhliða vefnum og segja má að hann sé að fara gegn því sem venjulega gerist almenn bæði með prent- og vefmiðla, að vefmiðlarnir haldi sér við vefinn en prentmiðlar fari úr prentinu og yfir á vefinn. Blaðið sem kom út í dag var um 20 síður og er tilraunaútgáfa og ekki verður gefið út annað slíkt blað á næstu vikum, en aðstandendur vonast til að blaðið veki athygli á vefmiðlinum og í framhaldinu verði jafnvel hægt að gefa út fréttablað daglega. Michael Stoll sem er framkvæmdastjóri miðilsins segir að blaðið sem kom út í dag í 8000 eintökum muni vonandi vekja áhuga þeirra fjölmörgu sem eru óánægðir með minnkandi fréttaumfjöllun á svæðinu og þannig verði hægt að safna áskrifendum til að standa undir prentútgáfunni.
Sjá einnig hér



Auglýsingar

Siðanefnd
Blaðamaðurinn
Blaðamannaverðlaun

Könnun

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis segir að fjölmiðlar hafi rækt illa það h lutverk sitt að upplýsa almenning um stöðu mála og veita stjórnvöldum og einkaaðilum gagnrýnið aðhald.

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning