:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Vill að Stöð 2 greiði réttarfarssekt

Embætti ríkissaksóknara  hefur óskakð eftir því við dómara í Héraðsdómi Reykjaness að tveir fréttamenn Stöðvar tvö verði dæmdir til að greiða réttarfarssekt fyrir að greina frá því sem fram fór í lokuðu þinghaldi í manssalsmálinu svokallaða. Ríkisútvarpið greindi frá þessu í hádegisfréttum. Þrátt fyrir ótvíræða lagaheimild munu ekki  vera fordæmi fyrir því að aðila sem ekki var viðstaddur réttahald  sé gert að greiða réttarfarssekt.  Ekki virðist um meðvitað brot á lögunum að ræða, en í samtali við RÚV segir  Óskar Hrafn Þorvaldsson fréttstjóri Stöðvar 2 að umrædd lög hafi verið brotin í hugsunarleysi. Fari svo að dómari geri Fréttastofu Stöðvar 2 að greiða sektina mun hún væntanlega koma úr persónulegum vasa Óskars Hrafns Þorvaldssonar , en samkvæmt siðareglum 365 miðla frá því í fyrra sumar eru ritstjórar (fréttastjórar) ábyrgir fyrir fjárútlátum fyrirtækisins  vegna ritstjórnarskrifa, þó aldrei fyrir hærri upphæð en sem nemur einum mánaðarlaunum.
Sjá einnig hér



Auglýsingar

Siðanefnd
Blaðamaðurinn
Blaðamannaverðlaun

Könnun

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis segir að fjölmiðlar hafi rækt illa það h lutverk sitt að upplýsa almenning um stöðu mála og veita stjórnvöldum og einkaaðilum gagnrýnið aðhald.

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning