:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Youube með fréttasíðu


Myndbandasíðan YouTube hyggs opna síðu þar sem boðið er upp á fréttamyndskeið jafnharðan og þau berast síðunni.  Samkvæmt talsmönnum fyrirtækisins mun verða boðið upp á stöðugn straum nýrra fréttamyndbanda þar sem áherslan er á myndræna viðburði sem koma frá óhefðbundnum uppsprettum, þ.e. sem eiga ekki rætur að rekja til fréttastofa eða fréttafólks.  Ekkert hefur hins vega komið fram um það hvers konar ritstýring eða siðareglur munu gilda um birtingu á þessu efni og hafa ýmsir dregið í efa að raunhæft og siðlegt sé að kalla óritstýrt efni sem kemur beint frá notendum því stóra nafni:  fréttir. Á meðfylgjandi myndbandi má sjá fréttamyndband af því þegar ungir aktívistar í Moskvu sem berjast gegn því að bílum sé lagt ólöglega límdu límiða á bíla. Einn bílstjórinn reiddist og eltir aðgerðarsinnan.
Sjá einnig hér



Auglýsingar

Siðanefnd
Blaðamaðurinn
Blaðamannaverðlaun

Könnun

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis segir að fjölmiðlar hafi rækt illa það h lutverk sitt að upplýsa almenning um stöðu mála og veita stjórnvöldum og einkaaðilum gagnrýnið aðhald.

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning