Akureyri
Íbúðin er að Seljahlíð 3c á Akureyri. Um er að ræða lítið raðhús sem
er stofa og tvö svefnherbergi. Í hjónaherberginu er tvíbreitt stórt rúm, auk smábarnarúms og í hinu herberginu er koja með
tvíbreiðu rúmi niðri, þar sem þrír geta sofið. Raðhúsið er búið öllum helstu nútímaþægindum,
þvottavél, sjónvarpi, nettengingu og síma og þar er sérverönd með gasgrilli og útihúsgögnum. Stranglega er
bannað reykja inn í húsinu.
Vikuleiga fyrir fullgilda BÍ félaga á árinu 2011 er 20 þúsund kr. Helgarleiga veturinn 2011-2012 er 12.400 kr. og sólarhringsgjald í
miðri viku er 4.000 kr. Viðbótarsólarhringur með helgi er á kr. 2.500. Greiða ber leigu við
úthlutun annars gengur úthlutun til baka.
Sækja þarf sérstaklega með fyrirvara um sumarúthlutun (júní til ágústloka) og einnig páskahelgina, en annars er hægt að hafa
samband við skrifstofu BÍ með skemmri fyrirvara um útleigu á öðrum árstímum, ýmist í heila viku, helgi eða einstaka daga.





