Blaðamannafélag Íslands á tvo sumarbústaði í Brekkuskógi í Biskupstungum, þriggja herbergja raðhús að Seljahlíð 3c á Akureyri og einnig hefur félagið til umræða sumarið 2011 3ja herbergja íbúð í blokk á Bolungavík, þar sem sex geta sofið í rúmum, en einnig er hægt að fá aukadýnur. Tvö svefnherbergi með fimm rúmum eru í bústöðunum en auk þess er gestahús við annan bústaðinn og er þar svefnpláss fyrir fjóra til viðbótar. Þá hefur félagið fest kaup á glæsilegu orlofshúsi á Stykkishólmi með góðum sólpalli og heitum potti. Í húsinu geta allt að 14 manns sofið.
Á skrifstofu félagsins er hægt að kaupa á hagstæðu verði:
- útilegukortið
- veiðikortið
- hótelmiða á Hótel Eddu
Félagar í BÍ geta keypt útilegukortið á á 8.500 kr., veiðikortið á 3.500 kr. (hámark 2) og miða á hótel Eddu á kr. 6.000, (hámark 3 miðar). Þá er hægt að kaupa miða í Hvalfjarðargöngin á kr. 580. Nánari upplýsingar eru á tenglunum hér að ofan.
Sumarleyfistíminn maí til loka ágúst er auglýstur sérstaklega á hverju vori og fer úthlutun eftir því hvort félagar hafa
fengið úthlutað áður og hversu lengi þeir hafa verið í félaginu. Sama gildir um úthlutun um páska. Á öðrum
tímum ársins er bústaðirnir til leigu fyrir félagsmenn. Rétt er að vekja athygli á haust- og vetrarleigu orlofshúsa
BÍ. Hægt er að bóka húsin sex mánuði fram í tímann og leigja þau um helgar eða í lengri tíma eftir
hentugleikum. Húsin í Brekkuskógi voru öll endurnýjuð vorið 2009 og húsið á Akureyri fyrir fáum árum
síðan.
Í öllum húsunum eru öll helstu heimilistæki, ísskápur, uppþvottavél, eldavél með ofni, útigrill, tölvutenging, dvd
spilari, sjónvarp og allar helstu íslensku sjónvarpsrásirnar. Þá eru heitir pottar í bústöðunum í
Brekkuskógi. Svefnpláss er fyrir 5-7 manns í raðhúsinu á Akureyri, 5-6 í Litlu-Brekku og 9-10 manns í Stóru-Brekku og allt að 14
manns í Stykkishólmi, eins og áður sagði.
Helgarleiga frá fös-sun er kr. 8 þús fyrir Litlu-Brekku og 11 þús fyrir Stóru-Brekku og raðhúsið á Akureyri fyrir fullgilda
félagsmenn. Greiða þarf við bókun annað hvort með greiðslukorti eða með því að leggja inn á reikning BÍ.
Hægt er að bóka með því að senda tölvupóst á orlofshus@press.is eða með því
að hringja í síma 553 9155.
Vikur í orlofshúsum sumarið 2011
Umsóknarfrestur er til 8. apríl 2011 (Smellið á "Umsókn" hér til
vinstri)
Vika 1. 27. maí – 3. júní
Vika 2. 3. júní – 10. júní
Vika 3. 10. júní – 17. júní
Vika 4. 17. júní – 24. júní
Vika 5. 24. júní - 1. júlí
Vika 6. 1. júlí – 8. júlí
Vika 7. 8. júlí – 15. júlí
Vika 8. 15. júlí – 22. júlí
Vika 9. 22. júlí – 29. júlí
Vika 10. 29. júlí – 5. ágúst
Vika 11. 5. ágúst – 12. ágúst
Vika 12. 12. ágúst – 19. ágúst
Vika 13. 19. ágúst – 26. ágúst
Vika 14. 26. ágúst – 2. september





