Skrifstofa Blaðamannafélagsins er í Síðumúla 23, 108 Reykjavík, sími 553-9155, bréfsími 553-9177 og netfang bi@press.is skrifstofan er opin alla virka daga frá kl. 09.00–16.00. Starfsmenn BÍ eru; Hjálmar Jónsson, formaður, Fríða
Björnsdóttir, framkvæmdastjóri og Svanhildur Karlsdóttir, bókari.
Meginverkefni BÍ lýtur að kjara- og réttindamálum blaða- og fréttamanna, veita þjónustu og ráðgjöf til félagsmanna og
standa vörð um faglega hagsmuni og réttindi blaða- og fréttamanna. Þá er félagið málsvari stéttarinnar gagnvart löggjafar- og
framkvæmdavaldi. Félagið gefur út tímaritið Blaðamanninn og stendur auk þess fyrir fræðslu- og umræðufundum. Á vegum
Blaðamannafélagsins starfar siðanefnd sem úrskurðar í þeim kærum sem berast vegna meints brots á siðareglum félagsins.
Blaðamaðurinn
Félagsblað BÍ heitir Blaðamaðurinn. Í blaðinu er að finna helstu fréttir af starfsemi félagsins hverju sinni. Blaðamaðurinn er
vettvangur fyrir faglega umræðu meðal blaða- og fréttamanna og öllum þeim sem vilja er boðið að koma efni sínu á framfæri við
ritstjórn blaðsins. ritstjóri er Birgir Guðmundsson. Hægt er að póstsenda greinar á skrifstofu félagsins, Síðumúla 23, 108
Reykjavík eða senda símbréf: 553-9177 eða sem best er það er að segja að nota tölvupóstinn: biggi@nett.is
eða bi@press.is





