Einar Arnórsson (1880-1955)

Einar fæddist á Minna-Mosfelli í Grímsnesi. Hann lauk stúdentsprófi frá Latínuskólanum 1901 og lögfræðiprófi frá Hafnarháskóla 1906. Hann var prófessor í lögum við Háskóla Íslands 1911-1915, en ráðherra Íslands 1915-1917. Hann var rektor Háskóla Íslands 1918-1919 og 1929-1930. Einar var hæstaréttardómari frá 1932-1942 og aftur 1944-1945. Þá var hann dóms- og menntamálaráðherra 1942-1944. Egill tók við ritstjórn Fjallkonunnar 1907 og varð seinna stjórnmálaritstjóri Morgunblaðsins og Ísafoldar um tíma, eða 1919-1920.