Jóhann Vilberg Árnason (1942-1970 )

Jóhann Vilberg var fæddur í Reykjavík, 6. febrúar. Foreldrar hans voru Árni Vilberg og Jóhanna Halldórsdóttir.

 Hann lærði prentverk í Alþýðuprentsmiðjunni 1957-61, en hætti þá prentverki og fór til Fálkans sem ljósmyndari, en síðan til Alþýðublaðsins. Haustið 1966 stofnaði hann fyrirtækið Grágás, prentsmiðju í Keflavík, ásamt Runólfi Elentínussyni félaga sínum sem starfaði um tíma sem ljósmyndari á Tímanum. Jóhann Vilberg lést af slysförum.

 

https://timarit.is/files/9824118