Tómas Karlsson (1937-1997)

Tómas fæddist í Reykjavík. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1958 og hóf nám í lögfræði við Háskóla Íslands, en hætti. Hann lauk prófi í forspjallsvísindum árið 1954 og stundaði síðar nám í alþjóðasamskiptum við Lundúna-háskóla á árunum 1965­-1966. Tómas varð blaðamaður við Tímann árið 1959 og var fréttastjóri frá 1960­-1961, fulltrúi ritstjórnar á árunum 1961-­1969 og ritstjóri árið 1970-­1974. Hann var skipaður fulltrúi í utanríkisþjónustunni árið 1974 og deildarstjóri upplýsinga- og menntadeildar utanríkisráðuneytisins árið 1981. Gegndi hann því starfi þar til hann hætti vegna heilsubrests. Tómas var varafastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum 1974­1978 og hjá Alþjóðastofnunum í Genf 1978. Hann sat í stjórn Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík og var formaður félagsins um tíma, auk þess sem hann átti sæti í fulltrúaráði framsóknarfélaga í Reykjavík. Hann var formaður Blaðamannafélags Íslands 1966­-1967, sat í útvarpsráði á árunum 1971-­1974 og var varaþingmaður í Reykjavík á árunum 1967­-1974.