BÍ og Kjarninn ná samningum

Blaðamannafélagið og Kjarninn náðu kjarasamningum nú í kvöld. Samningurinn er á sömu nótum og samningurinn sem skrifað var undir við Birting í gær. Að sögn Hjálmars Jónssonar, formanns BÍ eru viðræður í gangi við aðra miðla sem standa utan SA og miðar þeim viðræðum vel.  Á morgun hefjast síðan atkvæðagreiðslur um verkfallsaðgerðir hjá þeim miðlum sem eru innan vébanda SA.