Blaða- og fréttamenn sameinast í eitt félag

Félagar í Blaðamannafélagi Íslands og félagar í Félagi fréttamanna, stéttarfélagi fréttamanna á Ríkisútvarpinu, hafa samþykkt að sameina félögin undir merkjum Blaðamannafélags Íslands.

Sameiningin var samþykkt á aðalfundi Blaðamannafélags Íslands 28. apríl og á aðalfundi Félags fréttamanna í gærkvöld. Hún tekur gildi 1. júní og verður stétt blaða- og fréttamanna á Íslandi þá sameinuð í einu félagi.

„Á undanförnum árum hefur verið sótt að faglegri blaða- og fréttamennsku á Íslandi í síauknum mæli,“ segir Sigríður Hagalín Björnsdóttir, formaður Félags fréttamanna. „Blaða- og fréttamenn þurfa að þétta raðirnar og standa saman gegn þeim ógnum sem steðja að stéttinni. Með sameiningu Félags fréttamanna og Blaðamannafélags Íslands verða til öflug heildarsamtök blaða- og fréttamanna á Íslandi, sem tala máli okkar allra og berjast fyrir sameiginlegum hagsmunum og bættum starfskjörum stéttarinnar.“

Hið sameinaða félag verður bæði stéttarfélag og fagfélag.

„Sameining stéttarinnar í eitt öflugt fag- og stéttarfélag sendir sterk skilaboð út í samfélagið um mikilvægi faglegrar blaðamennsku á tímum þar sem sótt er að blaðamennsku og fjölmiðlum, hér sem annars staðar,“ segir Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands. „Framundan eru stór verkefni á miklum umbreytingatímum þar sem mikilvægt er að blaðamenn snúi bökum saman til að styrkja stoðir blaðamennsku og berjast fyrir hagsmunum stéttarinnar. Öflugt, sameinað félag blaðamanna verður mikilvægur vettvangur fyrir faglegt starf og mun vinna að því að skapa grundvöll fyrir sterka, sjálfstæða fjölmiðla í rekstrarumhverfi sem er meira krefjandi en nokkru sinni.“

Félag fréttamanna hefur til þessa verið aðildarfélag Bandalags háskólamanna. Eftir sameininguna verður félagið starfrækt áfram sem deild í Blaðamannafélaginu. „Við þökkum Bandalagi háskólamanna fyrir góða og ánægjulega samfylgd, frábæra þjónustu, og alla þá aðstoð og skilning sem það hefur sýnt okkur í sameiningarferlinu við Blaðamannafélag Íslands,“ segir Sigríður Hagalín.

Fyrir hönd stjórna BÍ og FF,

Sigríður Dögg Auðunsdóttir
Sigríður Hagalín Björnsdóttir