Blaðamannaverðlaun afhent

Verðlaunahafar Blaðamannaverðlauna í Hörpu nú síðdegis.
Verðlaunahafar Blaðamannaverðlauna í Hörpu nú síðdegis.

Verðlaunahafar Blaðamannaverðlauna BÍ 2017 voru voru að meirihluta til konur, en verðlaunin voru veitt nú síðdegis. Verðlaunahafar voru  Viktoría Hermannsdóttir sem átti Viðtal ársins, Alma Ómarsdóttir fékk verðlaun fyrir Rannsóknarblaðamennsku ársins,  Sunna Ósk Logadóttir fyrir flokkinn Umfjöllun ársins og ritstjórn Stundarinnar fékk Blaðamannaverðlaun ársins.

Rökstuðningur dómnefndar verðlaunanna var sem hér segir:

Viktoría Hermannsdóttir, RÚV,
fyrir viðtal við Árna Jón Árnason í þættinum Á ég bróður á Íslandi?

Viðtalsþáttur Viktoríu er unninn af fagmennsku og góðri tilfinningu fyrir efniviðnum. Í viðtalinu eru  hlustendur teknir með í spennandi ferð sem hefst með leit Bandaríkjamannsins David Balsam að bróður sínum hér á landi. Bróðirinn finnst og heitir Árni Jón Árnason.

Í áhrifamiklu viðtali nær Viktoría að draga fram hægláta persónu Árna, sem ekki  hefur krafist þess að taka mikið pláss í lífinu. Sambandi Árna við móður sína og systkini hér á á landi er vel lýst, sem og áhrifum þess að alast upp sem ástandsbarn. Um þann hluta hernámsins á Íslandi hefur ekki verið mikið fjallað og er viðtalið  frábær viðbót við hina vönduðu þáttaröð, Ástandsbörn, sem Viktoría gerði einnig á síðasta ári.  

Alma Ómarsdóttir, RÚV, 
fyrir rannsóknarblaðamennsku í umfjöllun um uppreist æru

Umfjöllun Ölmu um uppreist æru var heildstæð, þar sem allar hliðar málsins voru kannaðar. Rætt var við fulltrúa aðila sem sótt hafði um uppreist æru, konur sem brotið hafði verið gegn og aðstandendur þeirra og ferli umsóknar útskýrt.

Í samskiptum sínum við framkvæmdavaldið, sem ber ábyrgð á ferlinu, kom Alma hins vegar að lokuðum dyrum, þar sem neitað var að veita upplýsingar um hverjir hefðu fengið samþykktar umsóknir og hverjir veitt hefðu meðmæli með slíkum umsóknum. Ölmu tókst, meðal annars með kæru til Úrskurðarnefndar um upplýsingamál, að tryggja að öll gögn kæmust upp á yfirborðið og dró þannig fram nýjar upplýsingar sem skiptu verulegu máli fyrir almenning.

Sunna Ósk Logadóttir, Morgunblaðinu,
fyrir umfjöllun ársins með greinarflokknum Mátturinn eða dýrðin

Sunna varpaði skýru ljósi á þá stöðu sem uppi er á raforkumarkaði hér á landi. Í greinaflokknum Mátturinn eða dýrðin sést hvernig sífellt fleiri togast á um náttúruauðlindirnar sem eru af skornum skammti. Bent var á áhrif breyttra neysluvenja landsmanna með rafbílavæðingu og að eftirspurn fyrirtækja eftir raforku væri nú meiri en hægt er að afgreiða.

Um leið og þróun þessarar umræðu kom vel fram var bent á hvernig núverandi staða kallar á aðgerðir til að auka orkuframboð eða draga úr notkuninni. Sunna ræddi við tugi manna um stöðuna: íbúa, náttúruverndarsinna, virkjanaaðila, forsvarsmenn stofnana og aðra sem hafa hagsmuni og skoðanir á málinu. Málefnið er mikilvægt, framsetningin skýr og greinargóð, byggð á heimildum sem sóttar voru víða.

 

Ritstjórn Stundarinnar,
fær Blaðamannaverðlaun ársins fyrir umfjöllun um uppreist æru

Umfjöllun Stundarinnar um uppreist æru var vönduð, yfirgripsmikil og heildstæð. Samhliða ítarlegum fréttaskýringum birtust í upphafi umfjöllunarinnar áhrifarík viðtöl Áslaugar Karenar Jóhannsdóttur við fórnarlömb Róberts Downey sem sýndu mikla næmni fyrir umfjöllunarefninu.

Stundin lagði af mörkum mikla frumkvæðisvinnu í þessu máli og greindi fyrst miðla frá því að annar kynferðisbrotamaður, Hjalti Sigurjón Hauksson, hefði fengið uppreist æru samtímis Róbert og að til þess hefði Hjalti hlotið meðmæli frá föður þáverandi forsætisráðherra. Sú uppljóstrun Stundarinnar átti eftir að draga verulegan dilk á eftir sér sem endaði með stjórnarslitum og kosningum.