Blaðamennska er ekki glæpur!

Formenn blaðamannafélaga Norðurlanda, Sambands norrænna blaðamannafélaga, hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu vegna stöðunnar í Hvíta-Rússlandi og krefjast þess að endi verði bundinn á ofbeldi gegn blaðamönnum þar í landi.   Tfirlýsingin er eftirfarandi í íslenskri þýðingu:

 

Staða blaðamanna í Hvíta-Rússlandi hefur versnað verulega eftir hinar ólýðræðislegu kosningar í landinu þann 9 ágúst síðast liðinn. Jafnvel fyrir kosningarnar var frelsi fjölmiðla í landinu verulegum takmörkunum háð  og nú er ljóst  að Alexander Lukashenko forseti gerir hvað han getur til að þagga niður í blaðamönnum landsins.

 Almenningur í Hvíta-Rússlandi hefur nú tekið til máls og krefst lýðræðis.  Blaðamennirnir sem segja fréttir af mótmælunum fá ekki að vinna óhindrað. Þeir geta átt von á því öllum stundum að vera stöðvaðir og hnepptir í varðhald af lögreglunni.

Erlendir blaðamenn hafa líka átt undir högg að sækja í Hvíta-Rússlandi. Þannig á nefna, að þann 12. ágúst  varð danski ljósmyndarinn Asger Ladefoged  og kollegar hans fyrir árás lögreglu í Minsk. Sömu leiðis var sænski ljósmyndarinn Paul Hansen handtekinn og síðan neyddur til að yfirgefa landið.

Í ágúst hefur alls 151 blaðamaður verið handtekinn í Hvíta-Rússlandi samkvæmt upplýsingu frá Blaðamannasamtökum Hvíta-Rússlands frá því 1. sempember, en samtökin munu áfram fylgjast með  handtökum í landinu.

Það er ljóst að árásir Alexanders Lukashenkos á bæði innlenda og erlenda blaðamenn er liður í úthugsaðri áætlun, því án sjálfstæðra blaðamanna mun umheimurinn ekki fá uplýsingar um hvað er að gerast í landinu.

Stjórnvöld á Norðurlöndum hafa brugðist skjótt við þessum aðstæðum og það er mikilvægt að þau vakti vel framvinduna í Hvíta-Rússlandi.

Samband norrænna blaðamannafélaga krefst þess að bundinn verði endi á árásir á blaðamenn í Hvíta- Rússlandi. Við stöndum einhuga og með fullum stuðningi að baki félaga okka í Blaðamannasamtökum Hvíta-Rússlands.  Blaðamennska er ekki glæpastarfsemi!

 Samband norrænna blaðamannafélaga krefst:

  •  þess að stjórnvöld í Hvíta -Rússlandi láti þegar í stað lausa alla blaðamenn og felli niður allar kærur og lögsóknir gegn þeim. Allir blaðamenn, innlendir sem erlendur, ættu að hafa heimild til að vinna frjálst og óháð í Hvíta-Rússlandi.
  • þess að ESB og Öryggis og samvinnustofnun Evrópu taka skýra afstöðu með fjölmiðlafrelsi og fordæmi árásir á blaðamenn í Hvíta – Rússlandi.

 .

 Ulrika Hyllert, formaður Blaðamannafélags Svíðþjóðar

Tine Johansen, formaður Blaðamannafélags Danmerkur

Hanne Aho,  formaður Blaðamannafélags Finnlands

Hege Iren Frantzen, formaður Blaðamannafélags Noregs

Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands