Bretland: Yfir 100 fréttir vitna í rússnesk nettröll!

Fréttamiðlar í Bretlandi hafa vitnað oftar en 100 sinnum í tíst sem koma frá rússnesnkum nettröllum, samkvæmt rannsókn sem Guardian hefur gert.  Fréttirnar sem hér um ræðir fjölluðu meðal annars um Donald Trump, Donald Glover og Lenu Dunham.

Í júní síðast liðnum birti bandaríska þingið  upplýsingar um 1.000 Twitter reikninga sem Twitter telur að hafi verið haldið úti á vegurm „Internet Research Agaency“ (IRA), en það er ríkisstutt upplýsingafyrirtæki í St. Pétursborg sem sérhæfir síg í að framleiða upplýsingamengun. Þessir 1000 reikningar sem upplýst var um í júní eru viðbót við um 2000 reikninga sem vitað var að fyrirtækið hafi áður verið með.

Sjá einnig hér