- Félagið
- Faglegt
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Blaðamennirnir sex, sem haft hafa réttarstöðu sakbornings í allt að tvö og hálft ár vegna rannsóknar lögreglu tengdri skrifum á fréttum um Samherja, mæta í spjall á Pressukvöldi BÍ, þriðjudaginn 8. október kl. 20. Einnig mætir lögmaður BÍ í málinu, Flóki Ásgeirsson.
Líkt og fram kom í yfirlýsingu stjórnar BÍ var aldrei grundvöllur fyrir rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á blaðamönnunum sex enda beindist hún að þeirri háttsemi þeirra að taka við upplýsingum frá heimildarmönnum um samfélagslega mikilvæg málefni og miðla þeim til almennings með ábyrgum hætti. Í því felst ekki refsiverð háttsemi blaðamanna heldur þvert á móti stjórnarskrárvarin frumskylda blaðamanna í lýðræðislegu þjóðfélagi. Auk þeirra beinu og verulegu áhrifa sem rannsóknin hefur haft á líf og störf þeirra blaðamanna sem í hlut áttu hefur hún skapað réttaróvissu um störf allra starfandi blaðamanna á Íslandi og haft víðtæk fælingaráhrif.
Rætt verður um hvaða áhrif rannsóknin hafi haft á þá sex blaðamenn sem hafa haft réttarstöðu sakbornings í allt að tvö og hálft ár fyrir það eitt að sinna starfi sínu, hvaða áhrif málið hafi haft á aðra blaðamenn, stéttina í heild sinni, tjáningarfrelsi og fjölmiðlafrelsi? Einnig ræðum við hvers vegna blaðamenn njóti ríkari verndar í störfum sínum samkvæmt lögum en almennir borgarar og hvers vegna ekki ríki skilningur á sérstöðu og mikilvægi blaðamanna hjá íslenskum stjórnvöldum líkt og málin sanna.
Samtalinu stýrir Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður BÍ. Veitingar verða í boði.