Hringferð: Misnotkun staðreynda? Áfengi og önnur vímuefni í fjölmiðlum

Með hvaða hætti fjalla fjölmiðlar um áfengi og önnur vímuefni? Hvernig geta rannsakendur og fjölmiðlafólk bætt samskipti sín í milli og umfjöllun í fjölmiðlum um vímuefni? Hvaða heimildum er treystandi? Þetta er umræðuefni málþings sem Norræna velferðarmiðstöðin, sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina, stendur fyrir á Íslandi 8. mars 2016.

Málstofan er hluti af hringferð Norrænu velferðarmiðstöðvarinnar undir yfirskriftinni „Misnotkun staðreynda? Áfengi og önnur vímuefni í fjölmiðlum“ (Missbruk av Fakta? Alkohol och droger i medierna) sem verður haldin að þessu sinni í Reykjavík. Fagfólk fer fyrir yfir góð dæmi og önnur síðri um umfjöllum um áfengi og önnur vímuefni. Sem dæmi má nefna hvernig íslenskir fjölmiðlar fjalla um hvort einkasala ríkisins á áfengi eigi rétt á sér eða ekki. Hvernig getum við forðast slagsíðu í umfjöllun fjölmiðlanna?

Allir eru velkomnir á málstofuna þriðjudaginn 8. mars, klukkan 9.30 –12.00 í Norræna húsinu, Sturlugötu 5, Reykjavík.   Málstofan fer fram á íslensku og er aðgangur ókeypis.

 Vinsamlegast skráið ykkur á málstofuna: REGISTRATION

 

Drög að dagskrá

9.30 –10.00 Morgunmatur
10.00-10.15 Setning málstofu, Jessica Gustafsson, upplýsingafulltrúi, Nordens Välfärdscenter

Fundarstjóri: Guðrún Hálfdánardóttir, blaðamaður á mbl.is

10.15 –10.30 Vínbúðin í fjölmiðlum, Rafn M Jónsson, Verkefnisstjóri áfengis- og vímuvarna, Embætti landlæknis

10.30 –11.30 Pallborðsumræður
Rafn M Jónsson, Verkefnisstjóri áfengis- og vímuvarna, Embætti landlæknis
Ólöf Skaftadóttir, blaðamaður, Fréttablaðið
Jóna Margrét Ólafsdóttir, Aðjunkt í félagsráðgjafardeild, Háskóla Íslands
Aðrir þátttakendur tilkynntir síðar

Frekari upplýsingar:
Jessica Gustafsson upplýsingafulltrúi, sími +358 40 060 5752, 
netfang: jessica.gustafsson@nordicwelfare.org