Umsóknarfrestur vegna orlofshúsa er 2. apríl

Umsóknarfrestur vegna sumarleigu á orlofshúsum Blaðamannafélags Íslands í Stykkishólmi, á Akureyri og í Brekkuskógi er til og með þriðjudeginum 2. apríl næstkomandi.

Umsóknareyðublöðeru hér á press.is, en einnig er hægt að senda tölvupóst á orlofshus@press.is">orlofshus@press.is

Um er að ræða vikuleigu frá föstudegi til föstudags. Samtals 13 vikur frá 31.maí til og með 30.ágúst.

Tilgreinið fleiri en einn möguleika til þess að auðvelda úthlutun.

Raðhúsið á Akureyri er með svefnplássi fyrir 7-8
Stóra-Brekka með gestahúsi er með svefnplássi fyrir 9-10 í rúmum.
Litla-Brekka er með svefnplássi fyrir 5-6.
Stykkishólmur er með svefnplássi fyrir 12-14.

Vikuleiga fyrir fullgilda félagsmenn Bí á Akureyri og Stóru-Brekku er 20 þús., í Stykkishólmi 25 þús. og vikuleiga fyrir Litlu-Brekku 15 þús.
Myndir og upplýsingar má sjá hér á heimasíðunni

Orlofshúsin í Brekku voru endurnýjuð öll að innan fyrir fáum árum síðan og íbúðin á Akureyri var öll endurnýjuð fyrir sex árum síðan og pallurinn við húsið fyrir tveimur árum. Húsið í Stykkishólmi er byggt árið 2006.

Veiðikort og hótelkort verða til sölu á sktrifstofu félagsins eins og verið hefur.

Munið 2. apríl!