Endurbætur á Akureyri

Seljahlíð 3c, Akureyri
Seljahlíð 3c, Akureyri

Að undanförnu hafa verið gerðar endurbætur á húsi BÍ á Akureyri. Þannig hefur verið gert við þakið og það málað og ný útidyrahurðir settar í alla húsalengjuna. Auk þess hafa nokkrar aðrar minni breytingar og lagfæringar verið gerðar. Húsið á nú að vera í fyrirtaks ástandi en fyrir dyrum stendur þó að endurnýja ýmsa innanstokksmuni.