Formaður BÍ: Þagnarskylduákvæði verði endurskoðað

Blaðamannafélag Íslands fagnar niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness hvað varðar fyrirspurn blaðamanns Fréttablaðsins um launakjör og hlunnindi starfsmanns Seðlabankans, en furðar sig á að bankinn hafi ekki nú þegar brugðist við afdráttarlausri niðurstöðu dómsins og afhent umrædd gögn!  Fjórir sólarhringar eru liðnir frá birtingu dómsins, sem staðfesti niðurstöðu Upplýsinganefndar um upplýsingamál frá því um mitt sumar, en tæpt ár er liðið frá því farið var fram á afhendingu umræddra upplýsinga.  Það vekur ugg um að Seðlabankinn ætli að halda áfram að stunda þá geðþóttastjórnsýslu sem þar hefur verið stunduð.

Blaðamannafélag íslands hlýtur að beina því til forsætisráðherra, sem fer með málefni Seðlabankans annars vegar og málefni er varða upplýsingamál og gagnsæi hins vegar, að endurskoðað verði og skilgreint betur þagnarskylduákvæði 1. mgr. 35. gr. laga nr. 36/2001 um Seðlabanka Íslands, en ljóst er af málatilbúnaði Seðlabankans fyrir Héraðsdómi Reykjaness að bankinn notar það ákvæði sem skálkaskjól.  Orðrétt segir í dómnum að ákvæðið feli “í sér sérstaka þagnarskyldu um allt það sem varðar hagi viðskiptamanna bankans og málefni bankans sjálfs. Ekki er nánar skilgreint í lögum hver séu málefni bankans sjálfs, en að mati dómsins eiga þar undir viðfangsefni sem samrýmast sérstaklega hlutverki hans sem seðlabanka… Um önnur viðfangsefni stefnanda, sem eiga jafnt við um starfsemi allra stjórnvalda sem og annaarra, eins og starfsmanna- og launamál, fer um þagnarskyldu samkvæmt lögum, eða eðli máls hverju sinni.”

Jafnframt er athugandi hvort ekki þurfi við yfirstandandi endurskoðun upplýsingalaga að líta til ákvæða um föst launakjör og hlunnindi opinberra starfsmanna og skilgreiningar þar að lútandi.  Minnt er á að í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar er víða vikið að nauðsyn gagnsæis í opinberri stjórnsýslu og atvinnulífinu almennt til að auka traust í íslensku samfélagi, sem hefur verið af skornum skammti undanfarinn áratug.  Framganga Seðlabanka Íslands gengur þvert gegn því markmiði.  Bankanum má ekki haldast það uppi að slá leyndarhjúp um hlunnindi starfsmanna sinna á grundvelli bankaleyndar.

 Reykjavík 22. okt. 2019
Hjálmar Jónsson, formaður BÍ

Sjá dóm héraðsdóms hér