Frestur sumarleigu orlofshúsa til 12. apríl

Umsóknarfrestur vegna sumarleigu á orlofshúsum Blaðamannafélags Íslands í Stykkishólmi, á Akureyri og í Brekkuskógi er til og með fimmtudeginum 12. apríl næstkomandi.
Umsóknareyðublöð á press.is en einnig er hægt að senda tölvupóst á orlofshus@press.is

Um er að ræða vikuleigu frá föstudegi til föstudags. Samtals 13 vikur frá 1. júní til og með 31.ágúst. Tilgreinið fleiri en einn möguleika til þess að auðvelda úthlutun.

Raðhúsið á Akureyri er með svefnplássi fyrir 7-8
Stóra-Brekka með gestahúsi er með svefnplássi fyrir 9-10 í rúmum.
Litla-Brekka er með svefnplássi fyrir 5-6.
Stykkishólmur er með svefnplássi fyrir 12-14.

Vikuleiga fyrir fullgilda félagsmenn Bí á Akureyri og Stóru-Brekku er 20 þús., í Stykkishólmi 25 þús. og vikuleiga fyrir Litlu-Brekku 15 þús.

Myndir og uppl. á heimasíðu BÍ press.is

Orlofshúsin í Brekku voru endurnýjuð öll að innan fyrir fáum árum síðan og íbúðin á Akureyri var öll endurnýjuð fyrir sex árum síðan og pallurinn við húsið fyrir tveimur árum. Húsið í Stykkishólmi er byggt árið 2006.

Orlofssjóður verður ekki með hús í Bolungarvík til leigu í sumar eins og í fyrra. Veiðikort og hótelkort verða hins vegar til sölu eins og á síðasta ári á nýjum orlofsvef sem unnið er að að koma í loftið.

Munið 12. apríl.

Kv.

Hjálmar