Fylgja ber eftir fyrirheitum #MeToo

„Við krefjumst þess að tekið sé fastar á ofbeldi og áreitni á vinnustöðum okkar,“ segir í yfirlýsingu frá 75 íslenskum fjölmiðlakonum í tiefni af því að íþróttafréttamaður var kallaður heim af HM í Rússlandi eftir að hafa áreitt kollega sinn þar.   Konurnar skora einnig á starfsmenn fjölmiðla, stéttarfélög fjölmiðlafólks og sérstaklega yfirmenn  fjölmiðla að fylgja eftir fögrum fyrirheitum #MeToo og „sýna í verki að þegar ofbeldi og ógnandi hegðun er beitt „kastast ekki í kekki” milli fólks, heldur ber ofbeldismaðurinn einn ábyrgð á sinni hegðun.“

Yfirlýsing kvennanna er eftirfarandi:

Við undirritaðar, konur í fjölmiðlum, krefjumst þess að yfirmenn fjölmiðla í landinu tryggi öryggi okkar og annarra starfsmanna sinna á vinnustað. Við mótmælum því að í stéttinni starfi maður sem hefur ítrekað áreitt og beitt samstarfsfólk sitt ofbeldi.

Hjörtur Hjartarson, íþróttafréttamaður hjá Sýn, hefur endurtekið orðið uppvís að því að ógna og veitast að samstarfsfólki sínu. Hirti var sagt upp störfum á RÚV árið 2012, eftir að hann beitti samstarfskonu sína ofbeldi sem varð til þess að hún kærði hann fyrir líkamsárás. Hún dró kæruna til baka eftir að hann axlaði ábyrgð og baðst afsökunar. Hjörtur var einnig sendur í leyfi frá störfum sem íþróttafréttamaður á Stöð 2 eftir að hann réðst á samstarfsmann sinn þar árið 2014. Á dögunum var Hjörtur svo sendur heim eftir að hafa veist á ný að fyrrum samstarfskonu sinni á RÚV þar sem hún var við störf á HM í knattspyrnu í Rússlandi.

Alkóhólismi er alvarlegur sjúkdómur. Hann leiðir þó ekki sjálfkrafa til ofbeldishegðunar. Við, konur í fjölmiðlum, teljum ólíðandi að maður sem ítrekað hefur brotið á samstarfsfólki sínu fái sífellt ný tækifæri í fjölmiðlastétt á þeim forsendum hann sé hættur að drekka. Við höfnum því að vinna við slíkar aðstæður.

Við krefjumst þess að tekið sé fastar á ofbeldi og áreitni á vinnustöðum okkar. Við skorum einnig á starfsmenn fjölmiðla, stéttarfélög fjölmiðlafólks og sérstaklega yfirmenn Sýnar og annarra fjölmiðla að fylgja eftir fögrum fyrirheitum #MeToo og sýna í verki að þegar ofbeldi og ógnandi hegðun er beitt „kastast ekki í kekki” milli fólks, heldur ber ofbeldismaðurinn einn ábyrgð á sinni hegðun.

Undir yfirlýsinguna skrifa:

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, RÚV

Sunna Valgerðardóttir, RÚV

Ingibjörg Rósa Björnsdóttir, sjálfstætt starfandi blaðakona

Kristjana Arnarsdóttir, íþróttafréttakona á RÚV

Þórhildur Þorkelsdóttir, RÚV

Bára Huld Beck, Kjarninn

Alma Ómarsdóttir, RÚV

Ólöf Ragnarsdóttir, RÚV

Margrét Erla Maack, Kjarninn, áður RÚV og 365.

María Lilja Þrastardóttir, sjálfstætt starfandi blaðakona

María Björk Guðmundsdóttir, RUV

Þórgunnur Oddsdóttir, RÚV

Auður Ösp Guðmundsdóttir, DV

Lovísa Árnadóttir, fv. íþróttafréttakona á RÚV

Milla Ósk Magnúsdóttir, RÚV

Eva Björk Ægisdóttir, sjálfstætt starfandi ljósmyndari

Ásdís Ólafsdóttir, fyrrum dagskrárgerðarmaður á RÚV

Ragnheiður Thorsteinsson, RÚV

Rannveig Jónína Guðmundsdóttir, Víkurfréttir

Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Mannlíf og sjálfstætt starfandi

Viktoría Hermannsdóttir, RÚV

Gunnþórunnn Jónsdóttir, Fréttablaðinu

Snærós Sindradóttir, RÚV

Júlía Margrét Alexandersdóttir, Morgunblaðinu

Lára Ómarsdóttir, RÚV

Olga Björt Þórðardóttir, ritstjóri Fjarðarpóstsins

Ragnhildur Thorlacius, RÚV

Erla María Markúsdóttir, mbl.is

Anna Margrét Gunnarsdóttir, fyrrum blaðamaður á Nýju Lífi, Birtíngi

Sigríður Pétursdóttir, lausapenni hjá RÚV og fleiri fjölmiðlum

Ragnhildur Ásvaldsdóttir, sjálfstætt starfandi við dagskrárgerð

Vera Illugadóttir, RÚV

Aníta Estíva Harðardóttir, DV

Ragnhildur Aðalsteinsdóttir, Mannlífi

Kristborg Bóel, Austurglugganum og Austurfrétt

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjóri Stundarinnar

Sara Sjöfn Grettisdóttir, ritstjóri Eyjafrétta

Anna Marsibil Clausen, sjálfstætt starfandi

 Anna Margrét Björnsson, mbl.is

Ragna Gestsdóttir DV

Þorgerður Anna Gunnarsdóttir, mbl.is

Erla Hjördís Gunnarsdóttir, Bændablaðið

Erla Karlsdóttir, fyrrum blaðakona á DV

Brynhildur Björnsdóttir

Þórhildur Ólafsdóttir, RÚV

Þorgerður E. Sigurðardóttir, RÚV

Silja Ástþórsdóttir, fyrrverandi umbrotskona á Stundinni og fyrrum yfirhönnuður Fréttablaðsins

Birna Pétursdóttir

Anna Gyða Sigurgísladóttir, RÚV

Halla Þórlaug Óskarsdóttir, RÚV

Anna Lilja Þórisdóttir, Morgunblaðið

Lára Theódóra Kristjánsdóttir

Fanney Birna Jónsdóttir, Kjarninn og RÚV

Jóhanna Sveinsdóttir

Sigríður Elín Ásmundsdóttir

Áslaug Guðrúnardóttir, fyrrverandi fréttamaður RÚV

Anna Margrét Björnsson, mbl.is

Dagný Hulda Erlendsdóttir, RÚV

Kolbrún Björnsdóttir

Björg Magnúsdóttir, RÚV

Sigyn Blöndal, RÚV

Áslaug Karen Jóhannsdóttir

Ellen Karólínudóttir

Ásdís Ásgeirsdóttir

Lovísa Arnardóttir, Fréttablaðinu

Kristborg Bóel – Austurglugganum og Austurfrétt

Lára Hanna Einarsdóttir, sjálfstætt starfandi

Ástríður Viðarsdóttir, fyrrum blaðamaður mbl.is

Þóra Tómasdóttir

Steinunn Stefánsdóttir, fv. aðstoðarritstjóri á Fréttablaðinu

 Erla Tryggvadóttir, fyrrv. starfsmaður RÚV

 María Erla Kjartansdóttir, Birtíngi

Kolbrún Björnsdóttir

Inga Lind Vigfúsdóttir, RÚV

Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, Fréttablaðinu