Hvað dvelur orminn langa?

Pistill frá Hjálmari Jónssyni, formanni BÍ:

Undanfarnir dagar hafa sýnt svo ekki verður um villst mikilvægi starfsemi fjölmiðla fyrir lýðræðið sem fánabera tjáningarfrelsins og að enginn annar aðili getur gegnt því hlutverki sem þeir gegna hvað snertir eftirlit og aðhald að valdinu í samfélaginu.   Einkum er það ánægjulegt að sjá hversu vel hefur tekist til þegar einkareknir fjölmiðlar og fjölmiðlar reknir fyrir almannafé taka höndum saman og koma upp um ömurlegar meinsemdir í íslensku samfélagi með vandaðri og ítarlegri rannsóknarvinnu svo mánuðum skiptir.  Það undirstrikar  hversu mikilvægt það er að fjölmiðlar séu fjárhagslega öflugir og að ritstjórnarlegt sjálfstæði þeirra sé virt í hvívetna.

Ég finn fyrir velvild í ísensku samfélagi gagnvar fjölmiðlum og auknum skilningi á því mikilvæga hlutverki sem blaða- og fréttamenn hafa að gegna.  Ég verð ekki síst var við það í tengslum við yfirstandandi kjaradeilu Blaðamannafélagsins við viðsemjendur sína, sem kosið hafa sér verustað innan Samtaka atvinnulífsins.

Fjölmiðlar og fjölmiðlarekstur eiga sannarlega undir högg að sækja á sama tíma og þörfin fyrir vandað efni framleitt af sjálfstæðum fjölmiðlum hefur kanski aldrei verið meiri.  Þar ræður tækniþróun síðustu tveggja áratuga mestu, sem hefur gert það að verkum að tekjumódel fjölmiðla er í molum.  Miklu skiptir að hið opinbera komi að málum með myndarlegum hætti til að tryggja öfluga samkeppni á fjölmiðlamarkaði, að minnsta kosti á meðan fjölmiðlar eru að fóta sig í þessu nýja umhverfi.  Því vekur það furðu að vandað frumvarp menntamálaráðherra um stuðning við einkarekna fjölmiðla skuli ekki enn komið fram á Alþingi.  Langt er síðan drög að frumvarpinu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda og bárust við það nærfellt þrír tugir athugasemda. Óskiljanlegt er að frumvarpið sé ekki enn komið fram í ljósi þess að málið er brýnt og afdráttarlausra fyrirheita stjórnvalda um stuðning við einkarekna fjölmiðla, m.a. í stjórnarsáttmálanum.

Afdrif frumvarps um uppljóstrara er með mun jákvæðari hætti.  Styttra er síðan það var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda, en það var lagt fram í þinginu fyrrihluta nóvember og var vísað til allsherjar- og menntamálanefndar eftir fyrstu umræðu um miðjan mánuðinn.  Miklu skiptir að það frumvarp fái góðan framgang og um það skapist góður friður.  Atburðir síðustu daga hafa sýnt og sannað mikilvægi þess að það verði að lögum.  Í samráðsgáttina barst aðeins ein umsögn; frá Samtökum atvinnulífsins, sem leggjast eindregið gegn samþykkt frumvarpsins.  Kanski er það tímana tákn?!

Hjálmar Jónsson, formaður BÍ