Málþing: Staðbundin fjölmiðlun og stuðningur við einkarekna miðla

Símenntun Háskólans á Akureyri og Blaðamannafélag Íslands bjóða til opins málþings þar sem fjallað verður um stöðu einkarekinna fjölmiðla og frumvarp til stuðnings reksturs þeirra. Málþingið verður laugardaginn 23. mars kl. 10-14 í  stofu M102 á Sólborg HA, gengið inn um aðaldyr skólans. Málþingið er sérstaklega ætlað þeim sem starfa við fjölmiðla en allir eru velkomnir. 

Rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla á Íslandi hefur löngum verið erfitt margir þeirra eru að gefast upp. Sambærilegir miðlar í grannlöndunum njóta ríkisstyrkja til þess að stuðla að aukinni fjölbreytni og fjölræði bæði á landsvísu og á staðbundnum svæðum.

Eru ríkisstyrkir lausnin hér á landi? Frumvarp mennta- og menningarmálaráðherra, Lilju Alfreðsdóttur, um stuðning við einkarekna fjölmiðla hefur verið mikið til umræðu að undanförnu. Ýmsir hafa tjáð sig um frumvarpið, þær fjárhæðir sem þar eru kynntar og hvaða fjölmiðlar hafa gagn af því og hverjir ekki.

Mennta- og menningarmálaráðherra Lilja Alfreðsdóttir situr fundinn og kynnir sína sýn á framtíð fjölmiðla og talsmenn fjölmiðla ræða stöðu og rekstrarskilyrði fjölmiðla á landsbyggðinni.

Fundarstjóri: Dr. Sigrún Stefánsdóttir fjölmiðlafræðingur.

Dagskrá:

10.00-11.00
Rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra

11.00-12.00
Fyrirspurnir og umræður

12.00-13.00
Hádegishlé.  Veitingar í boði BÍ

Kl. 13-13.30
Miðjan er undir iljum þínum, Birgir Guðmundsson, dósent

Kl. 13.30-14.00

Staða og framtíðarsýn N4 í heimi nútíma fjölmiðla,  Stefán Friðrik Friðriksson

14.00- 14.30
Að vinna með nærsamfélaginu, Páll Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta

14.30-15.00
Ofurhugi í heimabyggð, Þingeyski púlsinn, Egill Páll Egilsson, ritstjóri Víkurblaðsins

15.00-15.20
Fyrirspurnir og fundarlok