Málþing um reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði

Málþing fjölmiðlanefndar um reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði


Fjölmiðlanefnd stendur fyrir opnu málþingi um reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði að Hannesarholti við Grundarstíg 10, kl. 14.00 til 16.30 fimmtudaginn 16. maí n.k. Fjallað verður um ákvæði laga um fjölmiðla nr. 38/2011 sem gera fjölmiðlum sem sinna fréttum og fréttatengdu efni að setja sér reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði starfsmanna. Fjölmiðlanefnd telur mikilvægt að stuðla að faglegri umræðu um skyldu fjölmiðla til að setja sér slíkar reglur og efni þeirra og tryggja að mismunandi sjónarmið komi fram, jafnt útgefenda, ritstjóra og blaðamanna. 


Til umfjöllunar á málþinginu verður m.a. efni og inntak slíkra reglna og hvernig ritstjórnarlegu sjálfstæði sé best fyrir komið í slíkum reglum. Þá verður rætt um hvort sömu sjónarmið eigi að gilda um setningu slíkra reglna hvað varðar prentmiðla og ljósvakamiðla, einkarekna miðla og ríkismiðla, staðbundna fjölmiðla og fjölmiðla sem ætlað er að ná til alls landsins og frímiðla og áskriftarmiðla? Ber að tryggja ritstjórnarlegt sjálfstæði ritstjóra og blaða- og fréttamanna gagnvart eigendum eða á eigendum að vera frjálst að móta og framfylgja eigin ritstjórnarstefnu? Eru aðrar leiðir hentugri til að tryggja réttindi blaða- og fréttamanna, t.d. í gegnum kjarasamninga eins og gert er á Norðurlöndunum? 


Karl Axelsson, settur formaður fjölmiðlanefndar verður fundarstjóri og stýrir jafnframt pallborði. Elfa Ýr Gylfadóttir framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar mun fara yfir forsögu og inntak ákvæðis laga um fjölmiðla nr. 38/2011 um skyldu til að setja slíkra reglur. Að því loknu mun Pétur Árni Jónsson, útgefandi Viðskiptablaðsins og Fiskifrétta fjalla um hvort reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði eigi rétt á sér. Því næst tekur Ólafur Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins til máls og fjallar um mikilvægi siðareglna. Að lokum fjallar Björn Vignir Sigurpálsson frá Blaðamannafélagi Íslands um ritstjóra í lykilhlutverkum. Guðrún Hálfdánardóttir fréttastjóri mbl.is og Anna Kristín Jónsdóttir, stjórnarmaður í Félagi fréttamanna á Ríkisútvarpinu munu síðan taka þátt í pallborðsumræðum að loknum erindum ásamt frummælendum.

Málþingið er öllum opið og án endurgjalds.



Dagskrá málþings


14.00 Karl Axelsson, settur formaður fjölmiðlanefndar býður málþingsgesti velkomna.

14.10 Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar: Til hvers eru reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði? Forsaga og inntak 24. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011.

14.25 Pétur Árni Jónsson, útgefandi Viðskiptablaðsins og Fiskifrétta: Eiga reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði rétt á sér?

14.40 Ólafur Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins: Mikilvægi siðareglna.

14.55 Björn Vignir Sigurpálsson, blaðamaður og formaður Siðanefndar BÍ: Ritstjórar í lykilhlutverki.

15.10 Kaffihlé

15.30 Pallborðsumræður. Karl Axelsson stýrir pallborðsumræðum. Í pallborði sitja auk frummælenda þær Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri mbl.is og Anna Kristín Jónsdóttir, sem situr í stjórn Félags fréttamanna á Ríkisútvarpinu.

16.30 Málþingi lýkur.