Mikilvæg ráðstefna fyrir blaðamenn

Frestur til að nýta sér ódýr snemmskráningrgjöld á  Rannsóknarblaðamennsku og gagnavinnslu- ráðstefnuna, rennur út þann 28 febrúar næstkomandi.  Þessi ráðstefna er meðal helstu viðburða eða möguleika fyrir blaðamenn sem vinna með mikið gagnamagn eða stunda rannsóknarblaðamennsku til að mynda alþjóðlegt tengslanet  í vinnu sinni, en slík tenglsanet eru gríðarleg mikilvæg nútíma blaðamennsku.  Ráðstefnan sjálf verður haldin í  Mechelen í Belgíu dagana  24. – 27. maí. Félagar í BÍ geta sótt um styrki úr sjóðum félagsins til að aðstoða sig við að komast á ráðstefnuna.

Sjá nánar hér.