Mynd ársins er af bakverði

Verðlaun fyrir blaðaljósmyndir ársins 2020 voru afhent í Ljósmyndasafni Reykjavíkur dag. Auk bestu myndar ársins voru veitt verðlaun í  sjö undirflokkum. Þorkell Þorkelsson, ljósmyndari á Landspítalanum, tók mynd ársins en hún er ein af myndunum í myndaröð ársins. Myndin er af Ástu Kristínu Marteinsdóttur, sjúkraliða og laganema eftir erfiða vakt, en hún skráði sig í bakvarðasveit þegar faraldurinn knúði að dyrum.

Sýningin Myndir ársins er nú haldin í Ljósmyndasafni Reykjavíkur og voru alls 98 myndir valdar á sýninguna af 729 innsendum myndum íslenskra blaðaljósmyndara. Nefnd sjö dómara valdi sigurvegara í hverjum flokki.

Ljósmyndararnir sem voru verðlaunaðir voru Kristinn Magnúson, ljósmyndari Morgunblaðsins, sem átti bestu fréttamyndina og að auki bestu tímaritamyndina, Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, sem átti íþróttamynd ársins og umhverfismynd ársins, Golli / Kjartan Þorbjörnsson, ljósmyndari Iceland Review, sem átti portrett ársins, Valgarður Gíslason ljósmyndari Fréttablaðsins sem átti mynd ársins í flokknum daglegt líf og Þorkell Þorkelsson fékk verðlaun fyrir myndaröð ársins auk myndar ársins. 

Mynd ársins: Þorkell Þorkelsson

Myndatexti: Ásta Kristín Marteinsdóttir, sjúkraliði og laganemi, skráði sig í sveit bakvarða þegar faraldurinn knúði að dyrum. Eins og aðrir heilbrigðisstarfsmenn stóð hún í ströngu á árinu.

Umsögn dómnefndar: Fallegt augnablik í lok krefjandi vaktar á Landspítalanum. Fegurð í stofnanalegu og sterílu umhverfi. Værð og ró er í myndinni en á sama tíma tregi og þreyta. Táknræn mynd fyrir ástand ársins sem flestir eiga auðvelt með að tengja við, handþvottur, spritt og þreyta.

 

Fréttamynd ársins: Kristinn Magnússon

Myndatexti: Útkall barst vegna bruna í íbúðarhúsnæði á horni Bræðraborgarstígs og Vesturgötu og var allt tiltækt lið sent á vettvang. Mikill eldur logaði í húsinu og bjargaði slökkvilið nokkrum úr logandi húsinu í gegnum glugga. Aðrir komust út af sjálfsdáðum, en tveir þurftu að stökkva út um glugga. Sex voru fluttir á slysadeild og þrír létust í brunanum. Kveikt var í húsinu og einn maður var ákærður fyrir verknaðinn.

Umsögn dómnefndar: Sterk frásögn í einum ramma af stórri frétt. Vel uppbyggð mynd sem segir margar sögur í einu. Hver einasti hluti myndarinnar hefur tilgang og minnir hún á frásagnarmálverk. Myndin sýnir vel alvarleika atburðarins og þær gríðarlega erfiðu aðstæður sem sköpuðust í eldsvoðanum.

 

Íþróttamynd ársins: Vilhelm Gunnarsson

Myndatexti: Guðlaug Edda Hannesdóttir þríþrautarkona æfði fyrir Ólympíuleikana í Tókýó í bílskúrnum heima í lítilli laug sem hún keypti í Costco eftir að sundlaugum var lokað vegna Covid-19. Leikunum var á endanum frestað til ársins 2021.

Umsögn dómnefndar: Í samkomubanni þar sem æfingastöðvar voru lokaðar og mótshald af skornum skammti þurfti afreksíþróttafólk að finna leið til að halda æfingum áfram. Íþróttamynd ársins kjarnar/sýnir þrautseigju og útsjónarsemi íþróttafólks í erfiðum aðstæðum sem þrátt fyrir það gátu verið ansi 

 

Tímaritamynd ársins: Kristinn Magnússon

Myndatexti: Matarþáttur fyrir jólablað Morgunblaðsins.

Umsögn dómnefndar: Tæknilega vel útfærð og stílíseruð mynd. Myndin er margskipt og skemmtilega hlaðin án þess að vera ofhlaðin. Mónótónísku greinarnar, laufin og könglarnir efst í rammanum mynda jafnvægi við litum og köku hlaðinn neðri hlutann. Með dulúðlegum fljótandi kertum sem tengja allt saman.

 

Umhverfismynd ársins: Vilhelm Gunnarsson

Myndatexti: Tívolíbomba springur inni í reykjarmekki á flugeldasýningu fyrir miðnætti á gamlárskvöld.

Umsögn dómnefndar: Óvenjuleg og listræn flugeldamynd sem hefur fagurfræðilegar skírskotanir í ýmsar áttir. Á ægifagran hátt minnir hún okkur á ógnandi nærveru kórónuveirunnar. Táknrænn endapunktur á krefjandi ári.

 

Daglegt líf mynd ársins: Valgarður Gíslason

Myndatexti: Svalasólbað við Laugaveg í Reykjavík.

Umsögn dómnefndar: Táknræn mynd fyrir sóttkvíarlíferni. Maðurinn rennur saman við umhverfi sitt og híbýli. Gluggarnir segja hver sína söguna og ímyndunnaraflið fer á flug. Hvernig var sóttkvíin bak við þessi gluggatjöld? Netflix búið og bækurnar staflast upp í glugganum. 

Portrettmynd ársins: Golli/Kjartan Þorbjörnsson

Myndatexti: Li Yiwie, kínverskur ljósmyndari búsett á Íslandi, skoðar íslensku vetrarskýin.

Umsögn dómnefndar: Falleg, óræð og draumkennd mynd. Viðfangsefnið liggur og horfir upp á skýin en á sama tíma er eins og hún sjálf fljóti um í skýjabreiðunni. Óvenjulegt og vel útfært portrett. Myndbyggingin gefur tilfinningu fyrir óendanleika og ró.

Myndasería ársins: Þorkell Þorkelsson

Myndatexti: Kvöldvakt á tveimur Covid-19 deildum Landspítala í Fossvogi.

Hér gefur að líta svipmyndir frá kvöldvakt á deildum A6 og A7 í Fossvogi sem að öllu jöfnu eru lungnadeild og smitsjúkdómadeild, en voru í faraldrinum sérútbúnar fyrir Covid-19 sjúklinga. Á báðum deildum hefur verið mikill viðbúnaður í faraldrinum vegna alvarleika ástandsins, en þar starfa samtals hátt í 150 manns á þrískiptum vöktum allan sólarhringinn. Sérstaklega mikilvægt er að halda vöku sinni að næturlagi þegar færri úrræði eru til staðar ef eitthvað kemur upp á. Álagið á starfsemi Landspítala hefur verið mikið síðan í upphafi árs 2020 og spítalinn lengst af starfað á hættustigi. Þar eru allar hendur á dekki til að bregðast við farsóttinni sem geisar. Alla starfsorku hinna 6.000 starfsmanna spítalans hefur þurft til að hann geti verið sá hornsteinn íslenskrar heilbrigðisþjónustu sem honum er ætlað að vera. Það hefur tekist með samstilltu átaki starfsfólks sem stendur vaktina og hugar að velferð skjólstæðinga allan sólarhringinn allt árið um kring.

Umsögn dómnefndar: Einlæg og falleg frásögn af kvöldvakt á Landspítalanum í miðjum heimsfaraldri. Ljósmyndarinn færir okkur heim sem fáir hafa aðgang að. Myndaröðin er heildstæð og sterk frásögn en jafnframt getur hver mynd staðið sér. Vel ljósmynduð sería við krefjandi aðstæður á erfiðum tímum.