MYNDIR ÁRSINS 2019

MYNDIR ÁRSINS 2019 opnar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur 11. maí

Myndir ársins er árleg sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands sem opnuð verður í Ljósmyndasafni Reykjavíkur 11. maí. 

 Á sýningunni í ár eru 96 myndir frá liðnu ári sem valdar voru af óháðri dómnefnd úr 836 innsendum myndum íslenskra blaðaljósmyndara. Myndunum er skipt í 7 flokka sem eru fréttamyndir, daglegt líf myndir, íþróttamyndir, portrettmyndir, umhverfismyndir, tímaritamyndir og myndaraðir. Í hverjum flokki valdi dómnefndin bestu myndina / bestu myndaröðina og ein mynd úr fyrrnefndum flokkum var svo valin sem mynd ársins.

Dómnefndarstörf fóru fram 14. – 15. mars síðastliðinn en í ár skipuðu dómnefndina þau Arnaldur Halldórsson, Bragi Þór Jósefsson, Brynjar Gunnarsson, Kristinn Ingvarsson, Rut Sigurðardóttir, Sigríður Kristín Birnudóttir og Catalina Martin-Chico, sem jafnframt var formaður dómnefndar.

Blaðaljósmyndarafélag Íslands var stofnað árið 1976 og starfar innan Blaðamannafélags Íslands. Sýningin Myndir ársins hefur verið haldin síðan 1980 og er ein fjölsóttasta ljósmyndasýningin landsins ár hvert. Stjórn Blaðaljósmyndarafélags Íslands í ár skipa Kristinn Magnússon (formaður), Eyþór Árnason, Hákon Davíð Björnsson, Heiða Helgadóttir, Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir og Styrmir Erwinsson. Hægt að nálgast bók með öllum myndum sýningarinnar í safnbúð Ljósmyndasafns Reykjavíkur og á Blurb.com.

Sýningin verður opnuð almenningi mánudaginn 11. maí og stendur til 30. maí 2020.