Nefnd um umbætur á lögum um tjáningarfrelsi

Forsætisráðuneytið hefur sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu um stýrihóp sem á að taka við svipuðum verkefnum og fyrri Immistýrihópar höfðu en þeir voru skipaðir árið 2012 og 2013.:

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra hefur skipað nefnd um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis.

Verkefni nefndarinnar verða eftirfarandi:

  1. Fara yfir fyrirliggjandi lagafrumvörp, sem stýrihópur, í kjölfar þingsályktunar nr. 23/138 um að Ísland skapi sér afgerandi lagalega sérstöðu varðandi vernd tjáningar- og upplýsingafrelsis, skilaði af sér eða hlutaðist til um að yrðu samin. Þessi frumvörp varða m.a. ærumeiðingar, hatursáróður, gagnageymd og ábyrgð hýsingaraðila.
  2. Taka til skoðunar fyrirliggjandi tillögur er lúta að tjáningarfrelsi opinberra starfsmanna og eftir atvikum skyldu þeirra til að greina frá lögbrotum eða brotum á siðareglum sem þeir verða áskynja um starfi.
  3. Fara yfir gildandi upplýsingalög í ljósi þróunar á alþjóðavettvangi og framkvæmdar laganna og meta hvort þörf sé á lagabreytingum.
  4. Meta hverjar aðrar lagabreytingar kunni að vera æskilegar á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis. Undir þennan lið falla til dæmis heimildir til að beita fyrirfarandi tálmunum við tjáningu svo sem í formi lögbanns.

Gert er ráð fyrir að nefndin skili af sér fullbúnum frumvörpum eða eftir atvikum öðrum undirbúningsskjölum lagasetningar. Vinnan verður áfangaskipt þannig að nefndinni er ætlað að skila af sér tillögum varðandi 1. og 2. lið fyrir 1. október næstkomandi og 3. og 4. lið fyrir 1. mars 2019.

Nefndina skipa:

Eiríkur Jónsson prófessor, formaður
Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, varaformaður
Birgitta Jónsdóttir, stjórnarformaður International Modern Media Initiative (IMMI)
Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands
Sigríður Rut Júlíusdóttir hæstaréttarlögmaður
Elísabet Gísladóttir, lögfræðingur í dómsmálaráðuneytinu
Þröstur Freyr Gylfason, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu
Elísabet Pétursdóttir, lögfræðingur í mennta og menningarmálaráðuneytinu

Sjá um fyrri vinnu á þessu sviði hér  

Svar við fyrirspurn um fyrri stýrihópa hér