Norskt skopmyndamál!

Forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Neanyahu, hefur komið á framfæri í gegnum ísraelska sendiráðið í Noregi kröfu um að Dagbladet biðjist formlega afsökunar á skopmynd sem birtist í blaðinu á dögunum.  Skopmyndin sýnir ísraelska forsætisráðherrann ýta ísraelskum drúsa út af bekk sem á stendur „aðeins fyrir hvíta“  og er búkur forsætisráðherrans í laginu eins og hakakross.

Tilefni skopteikningarinnar er nýleg löggjöf í Ísrael sem margir telja að gerir þá sem ekki eru gyðingar að annars flokks borgurum.  Sendiráðið í Noregi gerir þá kröfu að Dagbladet fjarlægi teikninguna og biðji Ísrael og  gyðinga í Noregi og um heim allan  opinberlega afsökunar á þessum and-gyðinglega áróðri.

Í viðtali við norska miðilinn Kampanje segir Geir Ramnefjell, stjórnmálaritstjóri Dagbladet, að það sé ekki ætlun eða stefna blaðsins að tengja ísraelska stjórnmálamenn við nazisma í fréttaskrifum eða pólitískum skrifum um heimsmálin og að innan blaðsins séu menn sammála um að brýnt sé að fara farlega í málum af þessu tagi.  Hins vegar vilji Dagbladet undirstrika að satíra í skopmyndum hafi mun meira svigrúm en ritstjórnarleg skrif. Það liggi í eðli þessara skopmynda að ýkja hluti og ganga lengra en annars væri leyfilegt og í þessu tilfelli hafi hinn reyndi teiknari, Finn Graff, vissulega farið út að mörkunum. Geir Ramnefjell bendir enn fremur á að teikningar af þessum toga hafi farið fyrir siðanefnd og ekki verið taldar ámælisverðar – einmitt út af þessu eðli skopmyndarinnar – og hann reikni með að það sama eigi við um þessa.  Hann er hins vegar ekki tilbúinn til að tjá sig um kröfur Ísraelsmanna.

Sjá einnig hér