Of sjaldan refsað fyrir dráp á blaðamönnum

Níutíu prósent morðingja blaðamanna í heiminum komust hjá refsingu árið 2017. Þetta kemur fram í upplýsingum sem UNESCO hefur safnað hjá aðildarríkjum sínum.

Þetta er örlítið skárra en í fyrra þegar 8% gerenda komst hjá því að sæta refsingu.

Frá 2006 til 2016 fordæmdi UNESCO, mennta-, vísinda,-og menningarstofnun Sameinuðu þjóðanna morð á 930 blaðamönnum í heiminum. Af þeim voru 102 drepnir árið 2016.

Meirihluti blaðamanna sem drepnir voru það ár voru blaðamenn sem unnu í innlendum fréttum í heimalöndum sínum. Helmingur morðanna voru framin í löndum þar sem ekki eru vopnuð átök.

 Fjöldi  morða á blaðakvenna sem ekki var refsað fyrir jókst úr 5% upp í 10% á milli áranna 2015 og 2016. Konur eiga fremur á hættu ofsóknir á netinu en karlar.

„Við fréttum af því að starfsystkini okkar séu drepin, særð, fangelsuð um allan heim,” segir Christiane Amanpour, sérstakur sendiherra UNESCO um tjáningarfrelsi og öryggi blaðamanna. „Okkur sem störfum í fjölmiðlum ber að halda áfram baráttunni fyrir að bundið verði endi á refsileysi.”

Alþjóðlegur dagur til að binda end á refsileysi fyrir glæpi gegn blaðamönnum er í dag 2.nóvember. Í tilefni alþjóðlega dagsins hleypir UNESCO af stokkunum alheimsherferð í samvinnu við fjölmðila um allan heim, meðal annars á samskiptamiðlum og er myllumarkið  #MyFightAgainstImpunity.

Tölulegt efni má finna hér

Efni fyrir fjölmiðla má finna hér