„Réttur til að vita ...“

Hótel Hilton Nordica Reykjavík
27. september kl. 12 - 14

„Réttur til að vita ...“


Skráningarform

Ráðstefnan er haldin í tilefni af „International Right to Know Day“ sem haldinn hefur verið víða um heim þann 28. september frá árinu 2003. Tilgangur dagsins er að leggja áherslu á að réttur einstaklinga til upplýsinga sé virtur og aðgengi að upplýsingum sem vistaðar eru hjá stjórnvöldum sé opið og gagnsætt.

Ráðstefnan er ætluð þeim sem hafa áhuga á að rétturinn til að vita sé virtur, bæði borgurum og þeim sem bera ábyrgð á vistun og miðlun upplýsinga.

Leitast verður við að svara eftirfarandi spurningum:
- Hvað felst í þessum degi?
- Hvað gera önnur lönd?
- Hver eru vandamálin við upplýsingagjöf á Íslandi í dag?
- Hver er réttur almennings til upplýsinga?
- Hvernig er lagaumhverfið?
- Hvað get ég fengið að vita um sjálfan mig?

Dagskrá:

11:50 Afhending ráðstefnugagna

12:00 Fundur settur - hádegisverður borinn fram

12:20 Hvað felst í alþjóðlegum degi um réttinn til að vita?
Jóhanna Gunnlaugsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands

12:30 Persónuupplýsingar
Hörður Helgi Helgason, lögmaður og forstjóri Persónuverndar

12:55 Opin gögn á Íslandi í samanburði við önnur lönd
Fulltrúi frá Open Knowledge Foundation á Íslandi

13:20 Hvað er nýtt í Upplýsingalögunum?
Trausti Fannar Valsson, Háskóla Íslands

13:45 Mat borgaranna: Af hverju leyna stjórnvöld upplýsingum sem eiga erindi við almenning?
Jóhanna Gunnlaugsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands

14:00 Fundarlok

Ráðstefnustjóri: Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis