Hjálmar Jónsson, formaður BÍ skrifar eftirfarandi pistil:
„En, guð sé oss næstur. Það gerist margt hér á landi.
Nú ganga menn uppréttir, jafnvel um hábjartan dag.
Skal dotta í geðlausri deyfð, sem á sama oss standi?
Skal draga í svaðið hið íslenzka göngulag?
Nei, aldrei skal takast þeim ættjarðarlausu bjánum,
að eyða þeim siðferðismætti, sem hér stendur vörð.
Álútir skulu menn ganga! og hoknir í hnjánum!
Og horfa með stilling og festu á íslenzka jörð!“
Mér varð hugsað til þessa kvæðis Steins Steinars og sérstaklega titils þess þegar ég velti fyrir mér ömurlegri framgöngu Samtaka atvinnulífsins í yfirstandandi kjaradeilu við Blaðamannafélag Íslands.
Og ég minnist þess ekki í þau bráðum fjörutíu ár, sem ég hef fjallað um og tekið þátt í kjarasamningum hér á landi, að það hafi ekki verið metnaðarmál atvinnurekenda í öllum greinum atvinnulífsins að bjóða kjarabætur sem að minnsta kosti jöfnuðust á við það sem aðir höfðu boðið, sama hversu bágt ástandið var í atvinnugreininni. En alltaf lærir maður eitthvað nýtt og nú er svo sannarlega skrifaður nýr kafli í í sögu samskipta verkalýshreyfingar og atvinnurekenda.
Það liggur nefnilega fyrir skjalfest og meitlað í stein að eina tilboð atvinnurekenda til BÍ í yfirstandandi kjaradeilu er verulega lægra en samið hefur verið um við allar aðrar stéttir og starfsgreinar í þessu samfélagi! Ég furða mig bara á því að eigendur þessara fjölmiðla, sem um ræðir, skuli sætta sig við þessa framgöngu SA, sem hefur gert það að verkum að í óefni stefnir.
Svo höfum við blaðamenn auðvitað leyft okkur þá ósvinnu að hugsa sjálfstætt og hafa skoðun á því hvað kemur að mestum notum fyrir starfsgreinina: „Nú ganga menn uppréttir, jafnvel um hábjartan dag.“
Eða eins og blaðamaður til áratuga, sérlega seinþreyttur til vandræða, sendi mér í tilskrifi: „Blaðamannafélag Íslands fer með samningsumboð fyrir sína félagsmenn. Það gengur ekki í samningum tveggja aðila að annar setji hinum ófrávíkjanlegan úrslitakost. Blaðamannafélag Íslands átti ekki neina aðkomu að gerð lífskjarasamningsins og hann er því ekki samningur þess. Auk þess tekur hann ekki á veigamiklum atriðum sem varða starfsumhverfi og kjör blaðamanna.“
Hjálmar Jónsson, formaður BÍ