Stöðvið prentvélarnar!

Í nótt var prentvél Ísafoldarprentsmiðju stöðvuð og skipt var um forsíðu á blaðinu vegna stjórnarslitanna. Hluti upplagsins kom því út með forsíðufrétt um stjórnarslitin en restin af upplaginu, sem farin var af stað í dreifingu hafði ekki þessa frétt.

Það er afar sjaldgæft að prentvélarnar séu stöðvaðar og skipt um forsíðu með þessum hætti  og hefur ekki gerst í mörg ár hér á Íslandi eftir því sem press.is kemst næst. Síðast mun það hafa verið gert á Morgunblaðinu fyrir hálfum öðrum áratug  eða svo.