Styrkir til staðbundinna landsbyggðarmiðla

Staðbundnir fjölmiðlar utan höfuðborgarsvæðisins geta fram til 11. desember næstkomandi sótt um styrk til menningar- og viðskiptaráðuneytisins, í samræmi við reglugerð nr. 1265/2022 um styrki til staðbundinna fjölmiðla

„Markmið með styrkveitingum til einkarekinna staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins er að efla starfsemi þeirra enda gegni þeir mikilvægu hlutverki við að tryggja aðgengi almennings að upplýsingum um menningar- og samfélagsmál og styðji með þeim hætti við lýðræðisþátttöku og menningarstarf.“ (3. gr. reglna nr. 1265/2022 um styrki til staðbundinna fjölmiðla).

Samkvæmt auglýsingu ráðuneytisins eru í ár til úthlutunar 5 milljónir króna: 2,5 m.kr. frá menningar- og viðskiptaráðuneyti og 2,5 m.kr. frá innviðaráðuneyti vegna aðgerðar C.07 í byggðaáætlun, Efling fjölmiðlunar í héraði. Höfuðborgarsvæðið nær yfir sveitarfélögin Reykjavíkurborg, Kópavogsbæ, Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ, Seltjarnarnesbæ og Mosfellsbæ.

Umsækjendum er bent á að kynna sér ákvæði reglna nr. 1265/2022 um styrki til staðbundinna fjölmiðla. Nánar hér